Keldudalur

Dagbók - blogg

Búið að rýja rollurnar

140 ær rúnar á 2 dögum.

Þá er búið að rýja rollurnar. Við rýjum ekki hrúta og geldar ær. Tóti er langt kominn með að klæða herbergin í nýja húsinu. Hann fékk hjálparhönd við smíðarnar í síðustu viku því að mamma og pabbi komu norður.
:: meira

Fundadagur

2 fundir í dag

Förum á aðalfund Félags kúabænda í Skagafirði. Ég er áfram gjaldkeri félagsins, ekki er kosið um embættið í ár. Tóti er kosinn fulltrúi á aðalfund LK. Fer á fund hjá Hrossaræktarsambandinu um kvöldið. Tek við viðurkenningu vegna gæðastýringar í hrossarækt.
:: meira
Kirkjubæjarklaustur II
Kirkjubæjarklaustur II

Afmælisveisla á Klaustri

Sólrún sextug!

Við drifum okkur í afmælisveislu til mömmu um helgina.
:: meira

Júróbandið sigrar........

loksins fer rétta lagið

Vikan byrjaði á körfuboltamóti í KR heimilinu. Við Sunna gistum á Sögu. Annars var þetta bara venjuleg vika. Mjólka, gefa rollum og kálfum, keyra 10 ferði á Krók. Vinn í bókhaldi Keldudals ehf. Ársreikningur 2007 er að verða tilbúinn.
:: meira

Síðasta vika...........

táningur í fjölskyldunni!

Vikan byrjaði með afmælisveislu Þórdísar en hún er orðin táningur. Mest öll vikan fór í að mála tvær umferðir á neðri hæðinni í Gestahúsinu. Á þriðjudaginn kom Gunnar á Sandfelli og sónaði 143 kindur. Frjósemin ekkert sérstök hjá ánum en mjög góð hjá gemsunum, 255 lömb alls. Þar af ein fjórlemba.
:: meira
Skíðað á Héraðsvötnum
Skíðað á Héraðsvötnum

Á skíðum í dag

-4°C og gott veður

Mjólkaði með Tóta. Gaf kálfum og rollum. Keyrði stelpurnar í reiðskólann í hádeginu. Fórum svo á skíði. Tóti dró okkur á snjósleðanum fram að Húsabakka.
:: meira

Nú er frost á Fróni

-13°C Snjónum kyngir niður.

Reiðskólinn byrjaði í dag. Sunna og Þórdís mættu þar með hnakka. Fórum síðan öll á skíði í Tindastól. Þar var norðan bylur og sá vart út úr augum. En ótrúlega gaman samt. Í gær fór Tóti til Reykjavíkur á málþingi um framtíð mjólkurframleiðslu á Íslandi.
:: meira

Áburðarverð loks birt

áburðurinn hækkar og hækkar.......

Tóti er búin að reikna út að áburðarpöntunin hjá okkur verður fyrir 2,5 milljónir, fyrir utan vsk. Þetta er 48% hækkun frá fyrra ári.
:: meira

Til baka

Keldudalur, Skagafjördur, North Iceland, 14 km from  Saudarkrokur.
Phone: (00 354) 453 6233 ? Fax: (00 354) 453-6234 ? E-mail: keldudalur@keldudalur.is ? Webpage: keldudalur.is

Síđast uppfćrt: 02. febrúar 2008 kl. 21:43
Búiđ til: 20. apríl 2006 kl. 15:13