Keldudalur

Leifur Þórarinsson og Kristín Ólafsdóttir keyptu Keldudal og hófu þar búskap árið 1962.   Þórarinn Leifsson og Guðrún Lárudóttir komu  formlega inn í búskapinn 1996 þegar Keldudalsbúið ehf. var stofnað. Tóti og Gunna eru nú eigendur Keldudals ehf. eins og búreksturinn heitir í dag.
Tóti og Gunna eru bæði búfræðikandidatar frá Hvanneyri (BsC 90),  en það er þriggja ára háskólanám í almennri búfræði að loknu búfræðiprófi. Við unnum við Hólaskóla í nokkur ár eftir að námi á Hvanneyri lauk.
Tóti og Gunna eiga 3 börn; Þórdís er fædd árið 1995, Sunna árið 1998 og Þorra árið 2001.

Í Keldudal er rekið stórt kúabú, en þar eru um 55 mjólkurkýr og um 95 aðrir nautgripir, kvígur og naut.  Meðalafurðir kúnna  árið 2008 voru 6.973 kg 
(6.882 kg 2007,  6.310 kg 2006, 6187 kg 2005,  5992 kg 2004) og próteinprósenta var 3,43.
Um 150 kindur eru á búinu, árið 2008 voru fædd lömb á á 1,86 og reiknað dilkakjöt á hverja á 35,8 kg.  (34,0 kg árið 2006)  (32,8 kg 2005).  Meðalfallþungi sláturlamba var 19,2 kg (18,3 kg), kjötmat fyrir gerð var 10,22 (9,85) og fitu 7,90 (7,33). Við erum í hópi afurðamestu fjárbúa landsins.
Nú eru um 20 hross á búinu, hryssur,  folöld, tryppi, og gangnahestar.  Ekki má gleyma henni Kollu er hún er íslenskur fjárhundur.  Hér eru líka íslenskar hænur, kötturinn Snælda og nokkrar geitur.

Ferðaþjónusta er rekin í Keldudal og erum við aðilar að Ferðaþjónustu bænda.  Kristín á Leifshús en Gunna og Tóti Gestahús.  Við getum tekið á móti ca. 14 manns í uppbúið rúm, en 20-30 manna hópum ef gestir geta gert sér svefnsófa og dýnur að góðu.

Nös 3794 frá Stokkhólma er ættmóðir langflestra þeirra horssa sem ræktuð hafa verið í  Keldudal.  Nös keypti Leifur 1967.  Frægustu afkvæmi Nasar eru: Leistur, Hrund, Djörfung, Seifur, Drótt, Amor og Askur frá Keldudal.  Nös fékk 1. verðlaun í kynbótadómi  og hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Fjórðungsmóti á Melgerðismelum árið 1987.

Hrund 5655 frá Keldudal dóttir Nasar og Þrastar frá Kirkjubæ hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti á Vindheimamelum árið 1990, þá aðeins 13 vetra gömul.

Hrund eignaðist 19 afkvæmi og má þar nefna: Ófeigu, Kveik, Ögra, Þjálfa, Röskvu og Æsu.

 

Þekktustu afkvæmi Hrundar eru án efa gæðingshryssurnar Ísold og Venus frá Keldudal sem báðar hlutu glæsilegan einstaklingsdóm, Venus 8,56 fyrir hæfileika á síðsumarssýningu í Skagafirði árið 1992 og Ísold 8,67 fyrir hæfileika á Landsmóti á Hellu árið 1994. Ísold hlaut heiðursverðlaun á Landsmótinu á Vindheimamelum árið 2006. Ísar frá Keldudal sonur Ísoldar náði þeir árangri árið 2004 að verða efstur í bluppi ungra stóðhesta, og er hæst dæmdi 4. vetra stóðhestur Svíþóðar. Hann er nú í hópi hæst dæmdu stóðhesta.

 

Ræktunarhryssur í Keldudal í dag eru Ísold, Venus og Æsa Hrundardætur, Fiðla og Hremming, séreign Kristínar og Ísold frá Kirkjubæjarklaustri II séreign Gunnu (heimamundur Tóta).

 

Vorið 2004 köstuðu 5 hryssur í Keldudal, en ein hryssa Ísold frá Keldudal var geld.  Venus er með svartskjóttan (gráan) hest undan Kletti frá Hvammi, Æsa með rauðstjórnótta hryssu undan Tind frá Varmalæk, Hremming með rauðskjótta hryssu undan Þristi frá Þorlákshöfn og Ísold frá Kbk. með rauða hryssu undan Rökkva þeim er sigraði B-flokk á Landsmóti hestamanna á Hellu 2004.

 

Vorið 2005 kom rauðblesóttur hestur undan Ísold og Hágang, brúnskjótt meri undan Venus og Gammi, grár hestur undan Ísold frá Kirkjubæjarklaustri og Þokka, rauðstjörnótt meri undan Æsu og Þokka, jarpur hestur undan Fiðlu og Sæ og móálótt hryssa undan Hremmingu og Þristi.

 

Vorið 2006 köstuðu 5 hryssur í Keldudal, en Ísold frá Keldudal var geld. Venus kastaði brúnskjóttum hesti undan Gammi frá Steinnesi, Æsa rauðblesóttri hryssu undan Eið frá Oddhól, Hremming mósokkóttum hesti og Ísold frá Kirkjubæjarklaustri sótrauðblesóttri (verður grá) undan Mætti frá Keldudal.

 

Vorið 2007 köstuðu 5 hryssur í Keldudal. Ísold frá Keldudal átti rauðblesóttan hest undan Hágangi, Venus rauðstjörnóttan hest undan Álfi, Æsa jarptvísstjörnótta meri undan Tjörva frá Sunnuhvoli og Ísold frá Kirkjubæjarklaustri svarta (gráa) meri undan Tjörva. Fiðla átti rauðstjörnóttan hest undan Degi frá Strandarhöfði. Hremming lét.

 

Vorið 2008 köstuðu 3 hryssur í Keldudal. Undan Æsu og Kjarna frá Auðholtshjáleigu kom jarpur hestur og undan Ísold frá Kirkjubæjarklaustri og Kjarna kom svartur/grár hestur. Hremming kastaði bleikblesóttri hryssu undan Roða frá Garði.

Til baka

Keldudalur, Skagafjördur, North Iceland, 14 km from  Saudarkrokur.
Phone: (00 354) 453 6233 ? Fax: (00 354) 453-6234 ? E-mail: keldudalur@keldudalur.is ? Webpage: keldudalur.is

Síđast uppfćrt: 08. ágúst 2009 kl. 20:52
Búiđ til: 30. desember 2004 kl. 22:04