16. júlí 2014
New hot tub, for 8 persons
![Heitur pottur við Leifshús](files/13/small/201407161523519e7aeef1ac24eb6d85ff02ae2d29b117.jpg)
Heitur pottur við Leifshús
Þá er búið að setja upp heitan pott við Leifshús.
Potturinn er með þægilegum sætum og er fyrir 8 manns.
01. apríl 2014
![Leifshús](files/2/small/20041230235013693.jpg)
Leifshús
Tóti og Gunna eru nú eigendur Leifshúss, sem er gamla íbúðarhúsið í Keldudal. Það var upphaflega byggð árið 1935 en var endurgert árið 1994. Þá var byggð önnur hæð ofan á húsið, það endurgert að innan og klætt að utan. Það var Kristín húsfreyja og fyrrverandi bóndi í Keldudal sem seldi húsið. Leifshús verður leigt úr sem sumarhús, það er 145 m2, hlýlegt og fallegt hús með góða sál. Tilvalið fyrir 2-3 fjölskyldur eða litla hópa.
27. júní 2010
fimmtánda folald Ísoldar
![Ísold 2010](files/3/small/20100706220353367.jpg)
Ísold 2010
Ísold frá Kirkjubæjarklaustri II kastaði sínu fimmtánda afkvæmi þann 26. júní. Það er brún hryssa undan Þey frá Prestsbæ. Þrjú afkvæmi Ísoldar hafa verið sýnd í kynbótadómi; Glóð frá Keldudal með 7,8 í aðaleinkunn og Ísól og Örn frá Keldudal með 8,23 í aðaleinkunn. Örn var sýndur í Svíþjóð í vor og fékk þá 8,04 fyrir byggingu og 8,35 fyrir kosti.