17. mars 2010
Aðalfundur félags sauðfjárbænda í Skagafirði var haldinn 9. mars. Við það tækifæri voru afhentar viðurkenningar fyrir margvíslegan árangur í sauðfjárrækt á liðnu ári.
Raunar lentu þessar viðurkenningar flestar hjá Keldudalsbúinu, en þær voru: Besti gimbrahópur í Skagafirði samkvæmt líflambadómum. Afurðahæsta fjárbúið með 34,2 kg. eftir ána. Besti sláturlambahópurinn 11.34 fyrir gerð og holdfyllingu samkvæmt kjötmati.. Einnig var besti veturgamli hrúturinn,Raftsson frá Keldudalsbúinu. Við dóm á veturgömlum vegur einstaklingsdómur 40% og afkvæmi 60%. Þess má geta að Ómur frá Keludal var besti veturgamli hrúturinn árið 2008
Fétt af feyki.is